Sendingarskilmálar
Við sendum um allt land með Dropp, og það er alltaf hægt að sækja pöntun frítt í verslunina okkar á Strandgötu 19 í Hafnarfirði.
| Afhending | Verð | Hvenær |
|---|---|---|
| Sækja í verslun, Strandgötu 19, 220 Hafnarfirði | Frítt | Tilbúið innan 1–3 virkra daga. Við sendum póst þegar pöntunin er tilbúin. |
| Dropp, heim að dyrum eða á afhendingarstað | Reiknað í greiðsluferlinu. | Eftir að við afhendum Dropp pöntunina: tilbúin á afhendingarstöðum á höfuðborgarsvæðinu samdægurs frá kl. 17, heimsending á höfuðborgarsvæðinu og Suðvesturlandi samdægurs milli kl. 18 og 22, og á afhendingarstöðum utan höfuðborgarsvæðisins næsta virka dag. |
| Sendingar til Evrópu | 3.990 kr | Yfirleitt 2–10 virkir dagar eftir að pakkinn er póstlagður, eftir landi (t.d. Danmörk 2–5, Þýskaland 2–7, Ítalía og Spánn allt að 10). |
| Sendingar til Bandaríkjanna | 5.900 kr | Yfirleitt 3–8 virkir dagar eftir að pakkinn er póstlagður. Tollafgreiðsla í Bandaríkjunum getur lengt tímann. |
Afgreiðsla pantana. Við afgreiðum pantanir innan 1–3 virkra daga. Pantanir sem berast um helgar eða á frídögum eru afgreiddar næsta virka dag.
Að sækja í verslun. Taktu með staðfestingarpóstinn sem þú fékkst þegar þú pantaðir. Pöntunin bíður þín í 14 daga.
Tafir. Fyrir jól getur afgreiðsla tekið lengri tíma. Við látum vita ef pöntun tefst.
Röng heimilisföng. Kaupandi ber ábyrgð á að heimilisfang sé rétt. Ef sending kemur til baka vegna rangs heimilisfangs þarf að greiða sendingarkostnað aftur.
Sendingar til útlanda. Við sendum til landa í Evrópu og til Bandaríkjanna. Kaupandi greiðir sjálfur toll, virðisaukaskatt og önnur gjöld í móttökulandinu.
Skil og skipti
Þú hefur 14 daga frá móttöku til að hætta við kaup á netinu og skila vöru, samkvæmt lögum um neytendasamninga. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
- Hvernig skila ég? Sendu póst á verslun@litlahonnunarbudin.is með pöntunarnúmeri og komdu með vöruna í verslunina, eða sendu hana til okkar.
- Sendingarkostnaður við skil greiðist af kaupanda, nema varan sé gölluð eða við höfum sent ranga vöru.
- Endurgreiðsla fer fram innan 14 daga frá því að við fáum vöruna, á sama greiðslumáta og notaður var.
- Skipti eru sjálfsögð innan 14 daga, ef varan er til.
- Gjafabréf fást ekki endurgreidd.
Gallaðar vörur. Ef vara er gölluð eða skemmd við afhendingu, hafðu samband innan sanngjarns tíma með mynd af gallanum. Við bjóðum nýja vöru, viðgerð eða endurgreiðslu, og greiðum sendingarkostnaðinn.
Upplýsingar um seljanda
Litla Hönnunar Búðin ehf.
Kennitala: 570714-1710
VSK-númer: 117728
Strandgötu 19, 220 Hafnarfirði
verslun@litlahonnunarbudin.is
Öll verð eru í íslenskum krónum, með virðisaukaskatti.