allar þeirra vörur eru með þeirra eigin teikningum sem eru svo ótrúlega fallegar.
Dothe og Karsten eru danskir grafískir hönnuðir sem eiga VisseVasse.
hér getiði skoðað allar vörurnar sem við erum með núna frá þeim og svo er st´ro sending á leiðinni til okkar á næstu vikum.
xoxo
]]>Við erum ótrúlega ánægð að það er að bætast við vöruúrvalið hjá okkur þessa dagana í umhverfisvænum vörunum okkar.
Við höfum verið með og verðum með áfram flottar vörur frá Mena svosem svitalyktareyðana, handklæðin tyrknesku ofl, Soley Organics er með sjampóin sín og sturtusápur ofl og við fyllum einnig á þær vörur svo erum við með Spa of Iceland og Angan svo eitthvað sé talið upp og í vikunni bættist við vörumerkið Fill þar sem þu getur fengið allt sem þú þarft til að halda heimilinu hreinu á eiturefnalausan hátt.
FILL ER VÖRUMERKI SEM BÝÐUR UPP Á UMHVERFISVÆN ÞVOTTA- OG HREINSIEFNI SEM KOMA Í FALLEGUM GLERÍLÁTUM, ÞRÆLVIRKA OG STUÐLA AÐ MINNA MAGNI UMBÚÐA. VÖRURNAR KOMA Í 500 ML ÁPRENTUÐUM GLERFLÖSKUM- OG KRUKKUM, 10L BAG-IN-BOX ÁSAMT ÖÐRUM STÆRRI STÆRÐUM EINS OG 20 L, 200L, 600L OG 1000L.
FILL VÖRURNAR ERU FRAMLEIDDAR Í BRETLANDI, AF FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI STAÐSETT Í NORTHAMPTONSHIRE. ÞAR STARFA EFNAFRÆÐINGAR VIÐ AÐ SETJA SAMAN FORMÚLUR SEM INNIHALDA AÐEINS LÍFBRJÓTANLEG INNIHALDSEFNI OG BÚA ÞANNIG TIL EINFÖLD, NÚTÍMALEG & ÁHRIFARÍK HREINSI- OG ÞVOTTAEFNI. ENGIN LITAREFNI. ENGIN SKAÐLEG INNIHHALDSEFNI. ENGAR PLASTFLÖSKUR. MINNI ÚRGANGUR. FILL CLEAN REPEAT.
FILL ER FYRIR ALLA ÞÁ SEM HAFA ÁHUGA Á BETRI OG UMHVERFISVÆNNI LEIÐUM VIÐ ÞRIFIN. FILL EINBLÍNIR Á AÐ FRAMLEIÐA EFTIRSÓTTAR UMHVERFISVÆNAR VÖRUR SEM ALMENNING LANGAR AÐ NOTA, Í GLERÍLÁTUM, SVO AÐ MINNI LÍKUR ERU Á AÐ UMBÚÐUM VERÐI HENT.
ÖLLUM EFNUM FILL ER AFLAÐ ÁN ÞESS AÐ GANGA Á NÁTTÚRUAUÐLINDIR, ERU EKKI PRÓFUÐ Á DÝRUM, VEGAN & LÍFBRJÓTANLEG, Þ.E. BROTNA NIÐUR Í NÁTTÚRUNNI.
ALLAR VÖRUR ERU TIL BÆÐI MEÐ NÁTTÚRULEGUM ILM EÐA ÁN ALLS ILMS.
Búðin er rekin af mér og eiginmanni mínum Elvari og er stútfull af vörum og verkum eftir íslenska sem erlenda hönnuði og listamenn. Þeir íslensku eru flestir frá Hafnarfirði en líka frá Sauðárkrók, Hvammstanga og Keflavík, Álftanesi, Reykjavík og eiginlega hvaðanæva af landinu.
Allir okkar listamenn leggja hug sinn og hjarta í verkin sín sem svo geta prýtt heimili ykkar Við leggjum líka mikinn metnað í að skapa þægilegt andrúmsloft í búðinni þannig að gestum líði sem allra best hjá okkur. Við vonum innilega að það skili sér til ykkar
Nú fer í garð sá tími þegar mikið er um gjafir og langar okkur því að minna örlítið á okkur og listamennina okkar sem telja yfir fjörtíu frábæra einstaklinga.
Þegar þú kæri viðskiptavinur Litlu Hönnunar Búðarinnar verslar hjá okkur styður þú við skapandi störf einyrkja og listamanna, frumkvöðlastarf og áframhaldandi vöxt verslunar í miðbæ Hafnarfjarðar.
Takk fyrir að vera þið og hlakka til að sjá ykkur næst
Ykkar Sigga Magga
Fyrsta umhverfiskvöldið með Gunnellu var á miðvikudaginn 13 nóv og næstu tvo miðvikudaga verða einnig námskeið.
við gerðu hreinsilög og þvottaskífur ásamt því að fræðast um það hvað við getum gert sem einstaklingar til að sinna umhverfinu okkar betur.
]]>Þessir æðislegu ljós eru komin til okkar
Hönnuðurnir eru Vasili Popov and Lidiya Koloyarskaya og er stúdíóið þeirra staðsett í Amsterdam.
Ljósin eru innblásin af lífverum sjávarins á svo fallegan máta fljótandi um loftin.
Það er yndislegt hvað maður getur gert mikið fyrir rýmið með þessum ljósum.
Þau koma í flötum pakka og þú setur þau saman sjálf/ur sem er ennþá skemmtilegra.
Í kassanum eru 10 forklippt form sem eru gerð úr sterkum og endingargóðum 300gr pappír og skref fyrir skref leiðbeiningar, og sýna nákvæmlega hvar á að brjóta og líma saman.
ljósinu fylgir ekki ljósapera né snúra - mikilvægt er að nota LED perur eða aðrar orkusparandi perur, mælt er með 11watt og 400lm
stærðin á ljósunum samsettum er mismunandi en td er skjaldbakan 51x48x16
]]>
Þessi fjögur ár hafa verið ótrúlega lærdómsrík og ég hlakka mikið til framtíðarinnar með ykkur og búðinni, þetta ár hefur verið einstakt, við fluttum í mun stærra húsnæði sem við erum ótrúlega ánægð með og höfum stækkað vöruúrvalið margfalt.
Nú er haustið að renna í garð og fullt af skemmtilegu á döfinni hjá okkur í búðinni svo endilega fylgist með.
Ég er þakklát fyrir ykkur og hlakka til þess sem koma skal með Litlu Hönnunar Búðina.
xoxo Sigga Magga
]]>